Ritstjórn
5.11.2026
Á skrifstofu Miðeindar státum við af miklum dýrgrip: tölvu af gerðinni Commodore CBM 8032, frá sirka 1981. Tölvan er með 32ja kílóbæta minni (já, kílóbæta, ekki megabæta eða gígabæta) og örgjörva af tegundinni MOSTEK 6502, sem meðhöndlar 8 bita í einu á 1 MHz klukkutíðni.
Tölvuna fann Vilhjálmur, stofnandi Miðeindar, yfirgefna í kjallara skrifstofuhúsnæðis í Reykjavík þar sem hún safnaði ryki og óhreinindum. Hún fór ekki í gang og þurfti talsverða björgunaraðgerð til að koma henni af stað.
Ástæðurnar fyrir því að Vilhjálmur vildi endilega bjarga þessari tölvu og koma henni fyrir á skrifstofu Miðeindar voru a.m.k. fjórar:
Þetta er sama tegund tölvu og hann sjálfur hóf atvinnuferil sinn sem forritari á, þá 15 ára gamall. Hann kann ennþá að forrita hana í forritunarmálinu BASIC og í 6502 vélamáli.
Tölvan styður íslensku fullkomlega, teiknar íslenska stafi á skjáinn og er með íslenskt lyklaborð með "dauðum broddi" fyrir broddstafi (sem sagt: fyrst slegið á ´ og svo a til að fá á).
Vilhjálmur skrifaði sjálfur, á sínum tíma, breytingarnar á stýrikerfi tölvunnar sem gera henni kleift að meðhöndla íslensku og íslenska stafi. Þær breytingar eru forritaðar í 6502 vélamáli og brenndar í lesminniskubba (EPROM kubba) sem skipt var um á móðurborði tölvunnar.
Með tilliti til punkta 1, 2 og 3 var ljóst að það var karma alheimsins sem leiddi Vilhjálm og tölvuna saman og björgun hennar því óhjákvæmileg og skrifuð í skýin.
Commodore CBM 8032 tölvur voru notaðar í yfir 80 íslenskum fyrirtækjum á sínum tíma, fyrir bókhald, tollskýrslugerð, ritvinnslu og fleira. Í nánast öllum tilvikum voru þetta fyrstu tölvur sem fyrirtækin eignuðust og notuðu. Þær voru yfirleitt tengdar við disklingadrif sem gátu geymt 1 MB (eitt megabæti) á 2 x 512 KB flötum, mjúkum, útskiptanlegum disklingum (floppy disks) sem voru 5¼" í þvermál. (Aldrei var talað um sentimetra í því sambandi.)
Til að koma tölvunni okkar í gang þurfti fyrst að hreinsa hana gaumgæfilega að utan sem innan. Að lokinni hreinsun var henni stungið í samband og kveikt – en ekkert gerðist.
Þá voru góð ráð dýr en tími kominn til að leita á náðir gervigreindar (Claude Fable 5) til að hjálpa við bilanagreiningu. Með aðstoð hennar og spennumælis varð ljóst að a.m.k. spennujafnarar tölvunnar (voltage regulators) væru óvirkir. Sem betur fer reyndist unnt að fá varahluti hjá hinni merkilegu verslun Íhlutum í Skipholti. Eftir skurðaðgerð með hjálp borvélar og lóðbolta voru nýir spennujafnarar settir í og aftur prófað að kveikja á tölvunni. Merkilegt nokk þá vaknaði hún til lífsins með pípi og eðlilegri skjámynd – sigur var unninn!
Hér sést skjámyndin sem upp kemur þegar kveikt er á tölvunni. Upphaflega stendur Commodore BASIC 4.0 í efstu línunni en breytta íslenska stýrikerfið yfirskrifar þann texta með auglýsingunni Tölvuskólinn þegar ýtt er í fyrsta skipti á takka á lyklaborðinu. Þetta var sem sagt gert undir formerkjum Tölvuskólans og síðar Tölvubúðarinnar, þar sem Vilhjálmur hóf starfsferil sinn sem forritari – og forritunarkennari.
Tölvuskólinn og Tölvubúðin fluttu inn og seldu Commodore PET og CBM tölvur, auk þess að halda býsna fjölsótt námskeið fyrir almenning um þetta nýja fyrirbæri – einmenningstölvuna – sem strax þá var talið, réttilega, að myndi breyta heiminum. Eins og fram kemur í fréttinni hér fyrir ofan frá 1981 lagði Tölvubúðin frá upphafi metnað í að styðja íslenskt letur á lyklaborði, skjá og prentara, sem var engan veginn sjálfgefið í þá daga.
Sá stuðningur var ekki eins auðveldur þá og nú til dags, þegar leturgerðir og virkni stýrikerfa eru „mjúk“, þ.e. breytanleg í hugbúnaði. Í tölvum á þessum tíma var yfirleitt aðeins um eina tegund leturs að ræða og það var brennt fast í lesminniskubba (read-only memory, ROM) á móðurborði tölvunnar. Sama gilti um stýrikerfið, sem sér um samskipti við lyklaborðið og að skrifa texta á skjáinn. Frá framleiðanda var letur og stýrikerfi fastsett á ensku í vélbúnaðinum og undantekning ef önnur tungumál voru studd.
Á myndinni hér fyrir ofan sést móðurborð Commodore tölvunnar. Kubburinn neðst til vinstri, í grænum ramma, inniheldur útlit íslensku stafanna (svokallaður character generator). Á hann er handskrifað „ISL ST“ – með rithönd Vilhjálms Þorsteinssonar sem útbjó kubbinn á sínum tíma. Hann er EPROM (Erasable Programmable Read-Only Memory), eða forritanlegur („brennanlegur“) kubbur sem einnig var unnt að þurrka út með því að láta útfjólublátt ljós skína á hann.
Kubburinn í rauða rammanum ofarlega hægra megin er merktur „BASIC 4“ (einnig með rithönd Vilhjálms). Hann inniheldur stýrikerfisviðbótina sem bætir við áðurnefndum dauðum broddi á lyklaborðinu, þannig að hægt sé að skrifa broddstafina eins og við þekkjum (broddur + a = á). Viðbótin er forrituð í 6502 vélamáli og er inngrip í venjulega lyklaborðsferlið, sem les merkin frá lyklaborðinu og breytir þeim í stafi sem birtast á skjánum.
Allar nýjar Commodore tölvur sem seldar voru á vegum Tölvuskólans og Tölvubúðarinnar voru sem sagt opnaðar þegar þær komu til landsins og skipt um þrjá lesminniskubba í þeim, til að styðja íslensku. Stundum voru upphaflegu kubbarnir ekki einu sinni í sökklum (sockets) þannig að það þurfti þá að klippa þá af móðurborðinu og lóða sökkul á það í staðinn með lóðbolta.
Þennan metnað má gjarnan hafa til huga nú til dags, þegar dæmi eru um t.d. miða- og kvittanaprentara í búðum og bíóum sem ráða ekki við íslenska stafi! Ættu þó heimatökin að vera mun hægari nú en þá.
Öll sem áhuga hafa á þessum 45 ára gamla dýrgrip eru velkomin á skrifstofuna til okkar til að berja hann augum – og æfa forritun í BASIC.
Ef þú vilt fylgjast með frekari verkefnum hjá Miðeind getum við látið þig vita þegar eitthvað nýtt er að frétta.