Nú styttist í að ár sé síðan Miðeind festi kaup á Snöru og því við hæfi að stinga niður penna og fara yfir það sem hefur átt sér stað á tímabilinu.
Kaupin komu kannski einhverjum í opna skjöldu en þegar forsendurnar eru skoðaðar koma þau ekki úr heiðskíru lofti. Miðeind hefur alltaf verið annt um að styðja við íslensku og að þróa tæknilausnir sem gera íslenskuna aðgengilega og nothæfa í stafrænu samhengi. Á Málstað, helstu vöru Miðeindar, eru allar helstu lausnirnar sameinaðar í þessum tilgangi og Málstaður nýtist vel sem ritstoð, sem rímar mjög vel við Snöru.
Tilkoma Snöru á sínum tíma var mikil bylting þegar kom að miðlun stafrænna orðabóka fyrir íslenskt málumhverfi. Tímarnir breytast og nú er svo komið að lítið er gefið út af íslenskum orðabókum á prentformi. Snara og álíka vefhirslur eru því ein helsta leiðin til að komast í upplýsingar um málið okkar. Ef við viljum að börnin okkar læri íslensku þurfum við að mæta þeim þar sem þau eru, þ.e. í netheimum.
Stafvæðing orðabóka hefur líka í för með sér mun betra aðgengi að upplýsingunum, svo sem með leitarvirkni og síun niðurstaðna. Þá eru ótaldar leiðir til að nýta upplýsingarnar sem hluta af öðrum lausnum til að styðja enn betur við þau sem skrifa texta.
Lesa má nánar um kaupin í pistli á heimasíðu okkar.
Kaupunum hafa fylgt margs konar breytingar, bæði fyrir gögn og notendur, en fyrsta skrefið var að gera orðabækur Snöru aðgengilegar í eigin viðmóti á Málstað. Upphaflegt viðmót Snöru var komið til ára sinna og ýmis tækifæri voru til staðar til að gera betur við notendur.
Áhersla var lögð á að breyta ekki um of frá fyrra viðmóti, en þó að láta það ríma við heildarútlit Málstaðar. Leitið varð hraðari og við bættum við möguleika til að leita eftir ólíkum orðmyndum. Slík virkni skiptir miklu máli til að mynda fyrir börn, unglinga og notendur með annað móðurmál en íslensku, sem kannski lesa texta og rekast á orð sem þeir þekkja ekki og geta ekki séð út hver uppflettimyndin á að vera, s.s. orðmörgum. Hliðarstikur gera svo auðvelt að rápa fram og til baka um niðurstöðurnar.
Viðmót Snöru á Málstað var mikill áfangasigur og eftir hann hefur gengið að mestu greitt fyrir notendur að færa sig frá eldra viðmótinu. Notendur, hvort sem er frá Snöru eða nýir, hafa þá val um áskrift að Málstað öllum eða aðeins að Snöru. Eldri notendur hafa enn sem komið er aðgang að eldra viðmótinu.
Lesa má nánar um fyrstu útgáfu Snöru og aðrar breytingar sem komu inn á sama tíma í pistli á heimasíðu okkar.
Orðabækur eru gulls ígildi og rík ástæða til að fella þær enn betur inn í ritvinnsluna í Málstað. Næsti áfangi var því að gera orðabækur Snöru aðgengilegar beint í textaritlinum í Málfríði. Við bjuggum til hliðarstiku í Málfríði sem inniheldur allar helstu aðgerðir fyrir textann, þar á meðal uppflettingar. Við höfum verið mjög ánægð með hliðarstikuna og möguleikana sem hún opnar á, og erum sífellt að bæta nýrri virkni þar inn.
Með hliðarstikunni og uppflettingunum þar er mun einfaldara fyrir annarsmálshafa, börn, unglinga og önnur sem hafa ekki tileinkað sér að fullu orðaforða íslensku að fletta upp orðmyndum sem þau þekkja ekki. Notandinn getur valið stakt orð eða fleiri og fengið þá færslur úr orðabókum Snöru í hliðarstiku. Uppflettingarnar nýtast líka í almennri ritvinnslu við að finna samheiti, þýðingu eða nákvæmara orðalag.
Lesa má nánar um hliðarstikuna og uppflettingarnar í pistli á heimasíðu okkar.
Á tímabilinu höfum við auk þessa lagfært ýmsa vankanta sem hafa komið upp, hvort sem er í viðmótinu eða í yfirfærsluferlinu. Það er heljarinnar verk að færa svo stóran og dyggan notendahóp yfir á nýjan stað svo vel sé, og við viljum þakka öllum þeim sem hafa sent okkur ábendingar og beiðnir á þessu tímabili. Endurgjöfin hefur verið dýrmæt og hefur nýst beint í þróunarferlinu.
Við höfum reglulega lagfært það sem kemur upp á en við nýttum veigameiri atriði úr endurgjöf frá notendum í góða yfirhalningu nú fyrir stuttu og einfölduðum viðmótið. Orðabækur innihalda gífurlegt upplýsingamagn í knöppum texta og því skiptir miklu að aðrir hlutir í viðmóti dragi athyglina ekki of mikið frá færslunum. Við léttum því á viðmótinu í takt við endurhönnun á Málstað í heild sinni sem átti sér stað á sama tíma. Auk þessa var stuðningi við algildistákn (? og *) bætt við í leitinni sem styður þá enn fjölbreyttari leitarfyrirspurnir.
Eins og sjá má fengu verkfærin á Málstað ný teikn við endurhönnunina, sem aðgreina þau betur hvort frá öðru og eru meira lýsandi fyrir þá virkni sem hvert verkfæri býður upp á. Snara er þannig orðin enn þéttar innvikluð í Málstað og er ómissandi hluti hans.
Meðfram öðrum verkum höfum við unnið að umbótum á undirliggjandi gögnum, þ.e.a.s. orðabókunum sjálfum. Það skiptir auðvitað höfuðmáli að það sem þar kemur fram sé rétt og satt. Þar höfum við bæði lagfært misfellur, hvort sem er eftir ábendingar frá notendum eða það sem við höfum sjálf tekið eftir, og unnið að því að koma orðabókunum á enn aðgengilegra form. Við erum engan veginn búin og höldum áfram á þessari braut.
Við erum alsæl með að vera komin með Snöru inn á Málstað og notendur hafa heilt yfir verið hæstánægðir með að hún fái þá athygli sem hún á skilið.
Nú er svo komið að eldra viðmóti Snöru á snara.is verður lokað í lok árs og allir notendur sem eftir eru færast yfir á Málstað. Vefurinn er kominn til ára sinna og því til mikils að vinna að koma notendum í mun stöðugra umhverfi sem vel er haldið við.
Við erum alltaf spennt fyrir fleiri orðabókum, uppflettiritum eða öðrum fjölbreyttari gögnum inn á Málstað og nýjum leiðum til að nýta þau og erum að skoða nokkra kosti í þeim efnum.
Við Málstað bætast svo reglulega nýjar lausnir sem opna á nýja nýtingarmöguleika og aldrei að vita nema eitthvað nýtt og spennandi komi á næstunni.
Ef þú vilt fylgjast með frekari verkefnum hjá Miðeind getum við látið þig vita þegar eitthvað nýtt er að frétta.