Ritstjórn
3.2.2026
Þann 6. febrúar 2026 heldur Róbert Fjölnir Birkisson, sérfræðingur í hagnýtingu og innleiðingu gervigreindarlausna, fyrirlestur um næstu kynslóð talgreiningar í texta: Frá einfaldri talgreiningu í fjölhátta líkön. Í erindinu fjallar Róbert um hvernig talgreiningarlíkön fyrir íslensku eru þjálfuð á hljóði og samsvarandi texta og læra þannig að umbreyta tali í texta. Eftirvinnsla úttaksins tryggir aukinn læsileika og gæði. Þó að hefðbundin líkön skili ágætum árangri þá opnar ný kynslóð líkana möguleikann á að þjálfa þau beint á textum til að þróa innbyggða máltilfinningu. Slík þjálfun leiðir til betri íslensku, færri villna, betri notendaupplifunar og opnar á fjölbreyttara úttak, til dæmis að greina hver talar og hvenær, eða að búa til ítarlegri og fjölbreyttari úrvinnslu hljóðs.
Róbert býr yfir víðtækri reynslu af því að brúa bilið á milli flókinna reiknilíkana og hagnýts hugbúnaðar til að skapa betri notendaupplifun fyrir notendur og fyrirtæki. Hann hefur starfað við þróun og innleiðingu gervigreindarlausna hjá Miðeind síðastliðið eitt og hálft ár. Róbert er með MSc-gráðu í Complex Adaptive Systems frá Chalmers-háskóla í Svíþjóð og BSc-í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.
UTmessan, sem haldin er í Hörpu, er einn stærsti tækniviðburður ársins á Íslandi. Þar kemur saman fjölbreytt úrval fyrirtækja, sérfræðinga og áhugafólks um tækni til að miðla þekkingu, ræða nýjustu strauma í tækniheiminum og kveikja áhuga á tölvu- og tæknigreinum. Fyrirlestur Róberts er tilvalinn fyrir alla sem vilja öðlast dýpri skilning á talgreiningu og á því hvernig nýjustu gervigreindarlíkön virka.
Við hvetjum alla sem verða á svæðinu til að mæta og hlusta á fróðlegan fyrirlestur sem tengir saman vísindi, tækni og hagnýtingu á spennandi og aðgengilegan hátt. Hægt er að kynna sér dagskrána hér.
Ef þú vilt fylgjast með frekari verkefnum hjá Miðeind getum við látið þig vita þegar eitthvað nýtt er að frétta.