Ritstjórn
19.6.2025
Í síðustu viku fór fram árlegur samstarfsfundur TrustLLM, rannsóknarverkefnis sem er styrkt af Horizon-rannsóknaáætlun Evrópusambandsins. Um er að ræða samstarfsverkefni ellefu aðila víðs vegar um Norður-Evrópu. Auk Háskóla Íslands og Miðeindar taka þar þátt stofnanir og háskólar á borð við Fraunhofer í Þýskalandi og AI Sweden í Svíþjóð. Markmið verkefnisins er að þróa stórt, opið og áreiðanlegt gervigreindarmállíkan fyrir germönsk tungumál, þar á meðal íslensku.
Á samstarfsfundinum var farið yfir fjölbreytt málefni sem tengjast þróun slíks líkans, svo sem gagnasöfnun, gæðamat og aðferðafræði við þjálfun. Einnig var lögð áhersla á að dýpka samstarf milli aðila og styrkja tengslin.
Tveir sérfræðingar úr tækniteymi Miðeindar, Garðar Ingvarsson Juto og Haukur Barri Símonarson, fluttu sameiginlega kynningu á fundinum þar sem þeir sýndu hvernig hefðbundin þjálfun risamállíkana mismunar kerfisbundið milli tungumála. Þeir lögðu til nýja aðferð til að mæla og leiðrétta þá skekkju sem bitnar sérstaklega á beygingarríkum málum eins og íslensku.
Einnig tók Þorvaldur Páll Helgason, tæknistjóri Miðeindar, þátt í pallborðsumræðum um áskoranir og tækifæri í þróun gervigreindar fyrir minni tungumál. Umræðuefnin snerust m.a. um traust á gervigreind, aðferðafræði til að vinna með takmarkað gagnamagn, samfélagsleg áhrif þess að tæknilausnir styðji ekki móðurmál notenda, og almenna framtíðarsýn á þessu sviði.