Ritstjórn
15.4.2026
Miðeind hlaut á dögunum styrk úr Skerfi. Skerfur er sjóður sem styrkir þróun og innleiðingu hagnýtra lausna sem byggja á íslenskri máltækni. Almennt er markmiðið að koma þróun máltækni og gervigreindar síðustu ár í hendur endanotenda, og að styðja við notkun íslensku á sem flestum sviðum.
Verkefnið sem hlaut styrk snýst um að bæta ljóslestri (e. optical character recognition, OCR) við Málstað, máltæknivettvang Miðeindar, og gera hann jafnframt aðgengilegan í gegn um forritaskil (API). Við köllum þessa nýju viðbót Lísu. Lísa opnar fyrir aðgang að miklu magni íslenskra gagna sem eru „innilokuð“ á pappír og í PDF skjölum. Verkefnið bætir þjónustu við öll sem skrifa og lesa á íslensku.
Til viðbótar við Lísu er Miðeind einnig samstarfsaðili Fjölmenntar og Miðstöðvar um auðlesið mál í öðru verkefni sem hlaut styrk úr Skerfi.
Verkefnið gengur út á að betrumbæta lausn Miðeindar fyrir einfalt mál og ganga enn lengra í að þjónusta ólíka markhópa og auðvelda miðlun efnis á íslensku til sem flestra.
Á Málstað má nú einfalda texta á augabragði með einum smelli, til að gera hann aðgengilegri og auðskiljanlegri. Ætlunin með Skerfs-verkefninu er að ganga lengra í einföldun og bjóða líka upp á svokallað auðlesið mál, en til þess þarf að uppfylla ákveðnar og ítarlegar kröfur um framsetningu og innihald textans.
Verkefnin ríma bæði vel við markmið Miðeindar um að styðja íslenskuna og koma ávinningi af máltækni í hendur almennings. Við hlökkum til að kynna nýja virkni til leiks þegar þar að kemur.
Sjá nánar: https://almannaromur.is/nytt/uthlutunskerfs2025
Ef þú vilt fylgjast með frekari verkefnum hjá Miðeind getum við látið þig vita þegar eitthvað nýtt er að frétta.