Ritstjórn
28.5.2026
Háskóli Íslands og máltæknifyrirtækið Miðeind hafa gert með sér samstarfssamning sem tryggir nemendum sem þurfa aukinn stuðning í námi aðgang að fremstu máltækni- og gervigreindarlausnum fyrir íslensku. Samningurinn er liður í því að nýta tækni sem jöfnunartæki til að mæta ólíkum þörfum nemenda háskólans.
Samningurinn er gerður að frumkvæði Nemendaráðgjafar Háskóla Íslands og snýr að skjólstæðingum hennar. Um er að ræða nemendur sem glíma við ýmsar áskoranir í námi, svo sem lesblindu og aðra sértæka námsörðugleika eða líkamlegar hamlanir. Markmiðið er að færa nemendunum tæki sem brúa bilið og gera þeim kleift að stunda nám á jafnréttisgrundvelli.
Háskóli Íslands hefur sett sér málstefnu þar sem fram kemur að „[m]áltækni sé nýtt til að aðstoða stúdenta og starfsfólk við meðferð íslensku og leiðbeina um málnotkun. Stúdentar og starfsfólk eigi kost á að nýta sér máltæknibúnað fyrir íslensku, svo sem leiðréttingarforrit, talgervla, talgreina og þýðingarforrit. Áhersla sé lögð á máltæknibúnað sem nýtist fötluðu fólki í námi og starfi“. Samstarfið við Miðeind er þáttur í því að virkja og framkvæma þessa stefnu, háskólanum og samfélaginu til hagsbóta.
Kjarninn í samstarfinu er aðgangur að Málstað (málstaður.is), máltæknivettvangi Miðeindar sem kemur tækninni beint í hendur almennings og atvinnulífs. Þar fá nemendur í hendur fjölbreytt verkfæri, þar á meðal málrýni, talgreiningu (tal í texta), vélþýðingu, og einföldun og samantekt á texta.
Tækninni er ætlað að styðja við notendur fremur en að vinna verkefnin fyrir þá. Með því að einfalda og yfirfara texta eða nýta talgreini til þess að koma hugsunum niður á blað geta nemendur yfirstigið tæknilegar og formlegar hindranir og einbeitt sér að innihaldi og skapandi hugsun.
HÍ mun miðla reynslu nemenda af notkun Málstaðar til Miðeindar, sem nýtir endurgjöfina til að þróa verkfærin áfram. Þannig verður til lifandi samstarf þar sem þarfir háskólasamfélagsins móta framtíð íslenskrar máltækni.
„Við lítum á þessa tækni sem öflugt jöfnunartól. Með því að veita nemendum okkar aðgang að þessum lausnum erum við að ryðja úr vegi hindrunum sem annars gætu staðið í vegi fyrir farsælu námi. Það er mikilvægt að tæknin sé notuð til að virkja nemandann og efla færni hans á hans eigin forsendum,“ segir Svandís Sturludóttir, deildarstjóri Nemendaráðgjafar.
„Það er okkur hjá Miðeind mikils virði að sjá tæknina okkar nýtast þar sem hún gerir jafn áþreifanlegt gagn og í þessu verkefni. Okkar sýn er að gervigreind eigi að vera mannbætandi og styðja við íslenska tungu. Samstarfið við Háskóla Íslands tryggir að við séum að þróa lausnir sem mæta raunverulegum þörfum og hjálpa fjölbreyttum hópi fólks að blómstra,“ segir Linda Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Miðeindar.
Ef þú vilt fylgjast með frekari verkefnum hjá Miðeind getum við látið þig vita þegar eitthvað nýtt er að frétta.