Við þökkum kærlega fyrir þær góðu móttökur sem Málstaður hefur fengið, en notendum fjölgar dag frá degi. Frá því að Málstaður fór í loftið hefur gríðarlega margt breyst og bæst við hann, allt með það að markmiði að þjónusta notendur sem best. Nú höfum við endurhannað viðmót Málstaðar til að einfalda hvernig þú notar Málstað.
Nú er enn auðveldara að nýta þér Málstað.
Nýja viðmótið sýnir betur hvað þú getur gert í Málstað, svo þú missir ekki af neinu. Við tókum skref í þá átt þegar við bættum hægri hliðarstikunni við Málfríði og höldum nú ferðinni áfram. Málstaður er einnig mun samþættari, þökk sé meðal annars nýrri hliðarstiku vinstra megin í viðmótinu.
Hliðarstikan kemur betur á framfæri því sem hægt er að gera innan Málstaðar, í stað þess að þú þurfir að leita í töfratakka. Þar er líka betur tilgreint hvað hver lausn innan Málstaðar gerir, og auðvelt er að flakka á milli lausna með einum smelli, í stað þess að þurfa að finna undirflipa í valmynd eins og áður. Þá eru þinn notandi og innskráningarmöguleikar ávallt sýnilegir í hliðarstikunni.
Auk þessa hefur efsti hluti síðunnar verið mikið minnkaður, ásamt því að hægt er að fella hliðarstikuna til hliðar og þannig hámarka það pláss sem þú hefur til að vinna eða leika þér.
Loks má nefna að allir litir hafa verið samræmdir og öll framsetning yfirfarin.
Önnur viðbót sem við erum mjög spennt yfir er myrkhamur (e. dark mode). Hægt er að hafa Málstað allan með dökku útliti til að draga úr skjáþreytu. Málstaður hlustar á stillingu í stýrikerfinu þínu, en hægt er að stilla útlit sérstaklega innan Málstaðar með því að smella á sólina/mánann í neðra vinstra horninu.
Auk þessa höfum við bætt við þau fríðindi sem fylgja aðgangi að Málstað.
Nú er hægt að senda 15 mínútna upptöku í Hreim í ókeypis aðgangi og fastri áskrift að Snöru eða Netskrafli.
Nú les Málfríður yfir allt að 30.000 stafi í einu í fastri og frjálsri áskrift að Málstað.
Nú þýðir Erlendur allt að 100.000 stafi í einu í fastri og frjálsri áskrift að Málstað.
Við setjum á næstu dögum notendakönnun í loftið til þess að geta enn betur skilið þarfir notenda. Við hvetjum öll til að taka þátt og láta okkur vita hvað má betur fara og hvernig Málstaður er helst notaður.
Með nýjustu breytingunum höfum við stigið enn eitt skref í átt að samþættari Málstað með betra flæði í upplifun notenda.
Breytingarnar gera okkur svo margt auðveldara í framhaldinu og við erum með margt spennandi í pípunum. Þar má meðal annars nefna beinan aðgang að endapunktum Málstaðar (e. API) innan frjálsrar áskriftar.
Við hvetjum notendur til að fylgjast með tilkynningum um spennandi nýjungar sem munu gera vinnu með íslenskan texta enn auðveldari og skilvirkari. Hægt er að fylgjast með hér á heimasíðu okkar, á Facebook, Instagram og á LinkedIn.
Ef þú vilt fylgjast með frekari verkefnum hjá Miðeind getum við látið þig vita þegar eitthvað nýtt er að frétta.