Skjalaþýðingar í Erlendi

Hingað til hefur Erlendur verið textaþýðingartól þar sem þú skrifar, talgreinir, eða límir inn texta, velur markmál og færð þýðinguna til hliðar við upprunalega textann. Nú þýðir Erlendur heil skjöl í sama viðmóti þar sem þú getur dregið inn Word-, PowerPoint- eða OpenDocument-skjal og sótt þýtt eintak þar sem sniðmáti skjalsins er viðhaldið.

Þýðing skjals

Dragðu skrá inn í ritilinn í Erlendi eða smelltu á takkann niðri til að hlaða upp skrá og Erlendur skiptir yfir í skjalaham með stuðningi fyrir eftirfarandi skráarsnið:

  • .docx – Word

  • .odt — OpenDocument textaskjal (LibreOffice / OpenOffice Writer)

  • .pptx — PowerPoint

  • .odp — OpenDocument-kynning (LibreOffice / OpenOffice Impress)

Þegar búið er að lesa skrána sýnir Erlendur stafafjölda og áætlaðan kostnað fyrir valið markmál. Orðalistar virka líka í skjalaham og því eru orðalistar sem þú hefur virkjað notaðir sjálfkrafa fyrir bæði skjöl og almennan texta.

Ýttu á Þýða skjal til að byrja og þá mun framvindustika sýna stöðu verksins. Þú getur lokað flipanum og komið aftur síðar þar sem verkið heldur áfram að keyra á vefþjóninum. Þegar þýðingunni er lokið gefur Sækja þýðingu hnappurinn þér skrána þar sem tungumálakóða markmálsins er bætt við skráarheitið — report.docx verður report-en.docx. Niðurhalstenglarnir eru virkir í eina klukkustund.

shape

Færa í ritil

Inntakshlið viðmótsins er með Færa í ritil hnappi (eingöngu fyrir Word-skjöl) sem afritar texta skjalsins yfir í textaritil Erlendar. Notaðu þetta ef þú vilt frekar þýða textann í ritli eða breyta honum áður en þú þýðir. Hins vegar mun sniðmát skjalsins líklegast tapast í ferlinu þar sem ritillinn styður ekki framsetningu allra mögulegra upplýsinga í skjalinu.

Á döfinni

Á næstunni viljum við stefna á enn betri skjalastuðning í Málstað, m.a.:

  • Skjalayfirlestur í Málfríði: Hlaða upp skjali í Málfríði og fá yfirlesið eintak til baka með leiðréttingum og athugasemdum.

  • Ljóslestur á PDF-skjölum: Greina texta úr skönnuðum PDF-skjölum svo hægt sé að þýða, lesa yfir eða nota með öðrum tólum á Málstað.

  • Betri samþættingu við Google Drive: Velja skjöl beint af Google Drive og vista niðurstöður aftur þar.

Skráðu þig á póstlistann okkar!

Efnisorð:
Deildu þessari grein: