Torráðnar krossgátur Ævars Arnar Jósepssonar birtast á ný – á Málstað

Unnendur íslenskra krossgátna af erfiðara taginu hafa síðustu ár saknað torráðinna krossgátna Ævars Arnar Jósepssonar, sem lengi vel birtust í Fréttablaðinu sáluga. Nú geta þeir tekið gleði sína aftur, því Ævar Örn og Miðeind hafa tekið höndum saman um að birta krossgátur hans á ný á Málstað. Þar verða þær í góðum félagsskap Netskrafls og Gátu dagsins, krossgátuleikja sem njóta mikilla vinsælda meðal áhugafólks um íslensku.

Í torráðinni krossgátu felur hver vísbending gjarnan í sér bæði skilgreiningu lausnarorðsins og orðaleik, svo sem stafarugl, falin orð, útúrsnúninga og villandi orðskiptingar, og svarið leynist þar sem skilgreiningin og orðaleikurinn mætast.

Fyrsta gátan á Málstað, nr. 625 í röðinni hjá Ævari Erni, mun birtast snemma í desember.  Í kjölfarið kemur út gáta alla laugardagsmorgna.

Fyrst um sinn verða gáturnar ókeypis og opnar öllum en síðar verða þær innifaldar í áskriftum að Málstað, þar á meðal áskrift að Netskrafli.

„Ég hef saknað þess mikið að semja þessar gátur og fagna því þess vegna mjög að hafa fundið þeim jafngóðan samastað og Málstaður er,“ segir Ævar Örn.

„Það gleður okkur hjá Miðeind að geta aukið enn við úrval skemmtilegra leikja og heilabrota fyrir íslensku,“ segir Linda Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Miðeindar. „Málstaður sameinar þannig gaman og alvöru, og þjónar öllum sem vilja bæði vinna  og leika sér með tungumálið okkar.“

Efnisorð:
Deildu þessari grein: