Tungumálið og hindranirnar

Snorri Rafn Hallsson, verkefnastjóri hjá Auðlesið. audlesid.is:

Með tungumálinu getum við gert nánast hvað sem er. Við getum skrifað þúsund blaðsíðna skáldsögu eða örljóð, sett reglur, gefið loforð, sýnt hver við erum og leyst helstu ráðgátur heimsins.

En tungumálið er líka fullt af hindrunum. Flest okkar hafa einhvern tíma fengið bréf frá hinu opinbera og lesið það þrisvar án þess að átta okkur á því hvað stendur í því. Höfum við gert eitthvað rangt? Hvað gerist næst? Þurfum við að gera eitthvað? Hvað? Hvenær? Hvernig? Flest okkar lenda blessunarlega sjaldan í þessu. Önnur oftar og fyrir fólk með þroskahömlun getur þetta verið hluti af daglegu lífi, hvort sem textinn eru lög, bæklingar, fréttir eða leiðbeiningar.

Ég starfa hjá Auðlesið. Starfið felst í því að taka þessa texta og skrifa þá upp á nýtt, þannig að fólk með þroskahömlun geti lesið þá og skilið. Mitt hlutverk er að ryðja hindrununum burt. Íslenska á að nýtast öllum sem tala hana.

Hvað er auðlesið mál?

Auðlesið mál er íslenska sem er skrifuð eftir föstum reglum í Handbók um auðlesið mál. Hver setning segir eina hugsun. Þolmynd verður að germynd og ef-setningum er skipt upp í spurningu og svar, þannig að „Ef formaður kemst ekki þá stjórnar varaformaður fundinum“ verður „Kemst formaður ekki? Þá stjórnar varaformaður fundinum.“ Efni er sett fram í upptalningum, erfið hugtök eru útskýrð og löngum orðum er skipt með miðpunkti svo þau verði auðveldari aflestrar.

Markhópurinn er fyrst og fremst fólk með þroskahömlun, en textarnir nýtast fleirum.

Málfríður

Málfríður er yfirlestrar- og textavinnslutól frá Miðeind og hluti af Málstað. Hún leiðréttir stafsetningu og málfræði, býr til samantektir og færir texta yfir á einfalt mál eða auðlesið mál. Auðlesið og Miðeind þróuðu síðastnefnda hlutann saman. auðlesið lagði til málheild með 27 handunnum textum á auðlesnu máli ásamt upprunalegum útgáfum þeirra, og ég prófaði tólið í raunverulegum verkefnum og sendi ábendingar sem Miðeind notaði til að bæta það.

Í nóvember prófaði ég Málfríði á tíu textum, meðal annars fréttum, leiðbeiningum, siðareglum og lagafrumvarpi. Setningar styttust að meðaltali úr fjórtán orðum í um fimm og enginn textanna þurfti miklar lagfæringar til að verða birtingarhæfur.

Fyrir flóknari texta, eins og lög og reglur, þarf sérfræðing til að lesa yfir. Vélin vinnur fyrstu drögin en ábyrgðin á lokaútgáfunni er hjá manneskjunni. Fyrir einfaldari texta, til dæmis fréttir, eða aðra texta um praktísk mál er útkoman úr Málfríði hins vegar það góð að ekki þarf manneskju með sérþekkingu til að gera mikið.

Hraðar, betur, meira

Fyrir mig þýðir þetta að verkefni sem áður tók fimm daga tekur nú tvo og hálfan. Tíminn sem sparast fer í fleiri verkefni og kynningar á auðlesnu máli. Stór verkefni eru orðin viðráðanlegri, til dæmis bæklingur Almannavarna, Verum viðbúin, og bæklingurinn Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB. Fyrir aðalfund ÖBÍ komu um þrjátíu skjöl inn á borð til mín með skömmum fyrirvara, sem hefðu verið óframkvæmanleg án tólsins.

Það kostar ekkert að prófa Málfríði í Málstað. Í ókeypis aðgangi er hægt að fá auðlesinn texta úr allt að 50.000 stöfum á mánuði. Þeir sem vilja nota hana meira þurfa áskrift.

Deildu þessari grein: