Nýtt! Prófaðu Málstað, vettvang fyrir allar helstu vörur Miðeindar.
Viltu skila frá þér fagmannlegri og fínpússaðri texta?
Málfríður er ný lausn frá Miðeind sem notar gervigreind til að greina og lagfæra stafsetningu, málfræði og stíl í texta á augabragði. Málfríður hentar öllum sem vilja lyfta skrifum sínum upp á næsta stig.
Leiðréttingar með hjálp gervigreindar: Málfríður beitir öflugri gervigreindartækni til að greina flóknar málfræði- og stílvillur sem hefðbundin leiðréttingartól koma ekki auga á.
Sniðmát: Texti sem er afritaður inn í viðmót Málfríðar heldur sniðmáti sínu, s.s. feitletrun, leturgerð og öðru í þeim dúr. Það er því auðvelt að láta Málfríði lesa yfir staka kafla í ritgerð eða skýrslu.
Notendavænt viðmót: Málfríður er auðveld í notkun, hvort sem þú ert byrjandi eða sérfræðingur í ritun. Málfríður er hönnuð með þægindi notandans í huga.
Hvernig nota ég Málfríði?
Viðmót Málfríðar er einfalt. Þú getur skrifað beint inn í viðmótið eða afritað inn texta. Málfríður tekur fljótt við sér, greinir textann sjálfkrafa og bendir á atriði sem má bæta. Þú færð síðan val um að samþykkja eða hafna tillögum, sem gefur þér fulla stjórn á endanlegri útgáfu textans. Hvort sem þú ert að skrifa bók, undirbúa kynningu, eða vilt einfaldlega skrifa betri tölvupósta, þá er Málfríður öflugt verkfæri sem hjálpar skilaboðum þínum að hitta í mark.