Íslenskan í heimi gervigreindar: Spjall um stöðu íslenskrar máltækni á Rás 2

Róbert Fjölnir Birkisson, sérfræðingur hjá Miðeind í hagnýtingu og innleiðingu gervigreindarlausna, var gestur í Morgunútvarpinu á Rás 2 í gær, miðvikudaginn 18. mars 2026.

Í viðtalinu fór hann yfir stöðu íslenskrar máltækni og ræddi meðal annars um hvar íslenskan stendur í heimi gervigreindarinnar miðað við önnur tungumál, hvernig við hjá Miðeind mælum getu líkananna og þörfina fyrir skjátextun á íslensku efni.

Róbert flytur erindi um stöðu íslenskunnar í gervigreind á Degi verkfræðinnar, sem haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica föstudaginn 20. mars 2026.

Hlusta má á viðtalið á vef RÚV hér

Efnisorð:
Deildu þessari grein: