Starfsfólk Miðeindar hefur legið undir feldi í vetur við að bæta Málfríði á ýmsa kanta. Við erum hæstánægð með afraksturinn og hlökkum til að sjá hvernig notendum líst á. Á meðal umbóta eru:
Læsileikamat og óalgeng orð
Nákvæmari ábendingar og hunsaðar
Skjalayfirlestur
Betrumbætur á líkani og hækkun á takmörkunum
Í Málfríði má nú í hægri hliðarstikunni finna neðst nýja tilraunavirkni. Þegar texti er skrifaður eða límdur inn í viðmótið birtist þar neðst greining á því hversu læsilegur textinn er, sem kallað er læsileikamat. Læsileikamatið er byggt á einfaldri aðferð sem getur gefið hugmynd um hversu þungur texti er í lestri út frá lengd málsgreina og lengd orða. Formúlan reiknar stig út frá meðalfjölda orða í hverri málsgrein og meðalfjölda atkvæða í hverju orði og hefur verið löguð að íslensku. Fleiri stig gefa til kynna léttlesnari texta, enda mælir formúlan læsileika en ekki erfiðleika.
Læsileikamatið varpar ljósi á læsileika textans en tekur ekki mið af efnisinnihaldi eða málfari textans. Til að skoða textann frá annarri hlið eru einnig gefin upp þau orð í textanum sem koma sjaldnast fyrir í útgefnum íslenskum textum. Það þýðir ekki endilega að þau eigi ekki heima í textanum, en þau eru líkleg til að geta vafist fyrir lesendum textans og henta til að umorða eða útskýra nánar. Hægt er að smella á hvert orð til að sjá hvar það kemur fyrir í textanum, ef orð kemur oft fyrir er hægt að smella oft til að sjá alla staði í textanum.
Saman gefa læsileikamatið og óalgengu orðin ágæta mynd af því hversu þægilegur textinn er aflestrar og hvað í honum gæti talist flókið og þurft frekari útskýringar eða umorðun. Önnur virkni innan Málfríðar, einfalt mál sem finna má undir textavinnslu í hægri hliðarstikunni, gagnast svo vel við að umorða textann eða í það minnsta fá hugmynd að orðalagi sem gæti verið aðgengilegra.
Virknin bætir mikilvægri vídd við Málfríði sem auðveldar þér að sníða textann betur að þínum markhóp og að gera hann aðgengilegri. Hægt er að gefa endurgjöf með því að smella á Tilraunavirkni í kassanum. Við þiggjum með þökkum allar ábendingar um það sem mætti betur fara.
Yfirlesturinn í Málfríði hefur einnig fengið yfirhalningu en nú segir hver ábending meira um það hvað felst í henni. Sérstaklega mikill munur er á ábendingum sem snúast um of fá eða mörg bil og hvernig þau eru framsett. Ábendingarnar hafa að auki verið litaflokkaðar svo auðveldara er að fá yfirsýn með snöggri skimun.
Málfríður hefur sinn stíl og bendir á það sem fellur ekki að honum. Við höfum nú bætt við möguleika á að hunsa ákveðna hluti sem Málfríður bendir á sem eru hluti af þínum höfundarstíl. Hægt er að skoða ábendingu í hliðarstiku eða í ritlinum og smella á Hunsa ábendingu. Eftir það sérðu ekki ábendingar af því tagi í Málfríði. Þú getur skoðað þær ábendingar sem þú hefur hunsað undir Hunsaðar ábendingar og getur hvenær sem er hætt að hunsa þær.
Við kynntum nýlega skjalaþýðingar, þar sem þú getur sent inn Word-, PowerPoint- eða OpenDocument-skjal og sótt þýtt eintak þar sem sniðmáti skjalsins er viðhaldið, án þess að þurfa að opna skjalið í viðmóti Málstaðar. Við höldum áfram í þessa átt og kynnum nú skjalayfirlestur. Þú getur nú sent inn eins skjöl og í skjalaþýðingarnar og fengið skjal til baka með leiðréttingum og athugasemdum. Þú getur þá opnað leiðrétta skjalið í Word og farið yfir allar ábendingar í yfirlestrarhamnum (track changes).
Við höfum lagt umtalsverða vinnu í vetur í að bæta líkanið að baki yfirlestrinum í Málfríði, bæði þegar kemur að gögnum og þjálfunarferlinu sjálfu. Við höfum séð töluverða bætingu á frammistöðu líkansins og höfum stillt upp fleiri tilraunum til að ná fram sem bestri hegðun.
Auk alls þessa höfum við nú hækkað mörkin í Málfríði, þannig að nú er í fastri og frjálsri áskrift hægt að senda inn 100 þúsund stafi í einu í stað 30 þúsund áður.
Við siglum sátt inn í sumarið en margar aðrar nýjungar bíða haustsins, svo sem ljóslestur á PDF skjölum og verkflæði til að einfalda vinnuferlið.
Við erum mjög spennt að sjá hvernig nýja virknin kemur að notum og erum með margt annað áhugavert í pípunum. Við hvetjum notendur til að fylgjast með tilkynningum um spennandi nýjungar sem munu gera vinnu með íslenskan texta enn auðveldari og skilvirkari. Hægt er að fylgjast með hér á heimasíðu okkar, á Facebook, Instagram og á Linkedin.
Við hlökkum mikið til, eins og alltaf, að koma nýjustu og bestu máltækni og gervigreind fyrir íslensku í hendur íslensks samfélags á gagnsæjan og ábyrgan hátt.
Ef þú vilt fylgjast með verkefnum hjá Miðeind getum við látið þig vita þegar eitthvað nýtt er að frétta.