Miðeind hlýtur styrk úr Markáætlun í tungu og tækni

Við erum stolt af því að tilkynna að Miðeind hefur hlotið styrk úr Markáætlun í tungu og tækni. Styrkurinn styður við þróun verkefnis sem nýtir nýjustu tækni í gervigreind til að gera barnaefni aðgengilegt með íslensku tali, ásamt því að gera almenningi öllum kleift að þýða og talsetja myndbönd á hagkvæman og hraðvirkan hátt. Lausnin sem við vinnum að byggir á tauganetslíkönum sem þýða tal úr myndbandsefni yfir á íslensku.

Markmið verkefnisins er skýrt: að börn á Íslandi geti notið gæðaefnis á íslensku með nútímalegri miðlun sem stenst kröfur dagsins í dag. Við vonum að verkefnið geri stjórnvöldum auðveldara að setja fram kröfur eða kvaðir þegar kemur að talsetningu sjónvarpsefnis á erlendum efnisveitum, einkum fyrir börn.

Þetta er stórt skref í átt að því að tryggja íslenskri tungu sess í stafrænu samfélagi og nýrri tækni sem mótar menningu og miðlun framtíðarinnar.

Viltu vita meira? Fáðu nýjustu fréttir á heimasíðu okkar eða fylgdu okkur á samfélagsmiðlum.

Efnisorð:
Deildu þessari grein: