Stofnandi Miðeindar hlýtur verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2026

Vilhjálmur Þorsteinsson stofnandi og stjórnarformaður Miðeindar hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember 2026. Hann er 31. handhafi verðlaunanna frá því þau voru fyrst veitt árið 1996. Ráðherra menningarmála, nýsköpunar og háskóla, Logi Einarsson, afhenti verðlaunin.

Vilhjálmur með verðlaunagripinn

Við athöfn í Eddu, húsi íslenskunnar, flutti Vilhjálmur eftirfarandi ávarp:


Ráðherra, góðir gestir.

Ég mun nú flytja ykkur tækifærisræðu. Það gleður mig sérstaklega, og ekki bara af því að tilefnið er þakkarvert og gleðilegt, heldur líka vegna þess að tækifærisræða er eitt af fáum orðum í Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls sem innihalda þrjú æ. - Næst í æ-þéttleika í Beygingarlýsingunni er líklega ælæner - vinsælt skraflorð - með tvö æ meðal sex stafa, og sýnir um leið að íslenskan getur tekið við allskonar og gert það að sínu.

Ég þakka af alhug þann mikla heiður að hljóta verðlaunin sem kennd eru við Jónas Hallgrímsson. Þegar ég les listann yfir þau sem hafa staðið hér á undan mér, skáld, kennara, fræðimenn og þýðendur, þá veit ég vel að ég er ekkert af þessu. Ég er fyrst og fremst forritari með áhuga á tungumáli og tækni. En ég leyfi mér að halda að Jónas hefði skilið erindið. Hann þýddi stjörnufræði handa alþýðu og smíðaði jafnóðum orðin sem vantaði: aðdráttarafl, sporbaugur, ljóshraði, sjónauki, sólmyrkvi. Hann leit svo á að íslenskan ætti að samtvinnast nýjustu þekkingu hvers tíma. Um það snýst máltæknin líka.

Frá 1965

Ég fæddist árið 1965, sama ár og talið er að Sigurður Nordal hafi teflt fram nýyrðinu „tölva“, og hef verið mjög heppinn með tíma til að lifa á, frá sjónarhóli tækninjarðarins. Sex árum eftir að ég fæddist kom fyrsta samrásin sem gat reiknað, svo vasatölvurnar, og einmenningstölvan þegar ég var á unglingsaldri. Þá netið og vefurinn, farsímar og snjallsímar, og nú gervigreindin. Hver byltingin á fætur annarri, og ég hef fengið að fylgjast með þeim öllum.

Íslenskan hefði hæglega getað setið eftir í einhverri þessara byltinga. En sem betur fer hefur allan tímann verið fólk sem lét sér annt um tungumálið, hafði metnað fyrir hönd þess, og taldi sjálfsagt að tölvurnar tileinkuðu sér íslensku, fremur en að við sættum okkur við að þær ynnu fyrst og fremst á ensku.

Ég vil nefna nokkur þeirra. Jóhann Gunnarsson, Odd Benediktsson og Örn Kaldalóns, sem börðust fyrir því að íslensku stafirnir fengju sæti í alþjóðlegum stafatöflum. Sigrúnu Helgadóttur, sem ritstýrði Tölvuorðasafninu og var frumkvöðullinn að baki Almannarómi, vettvangs máltækni. Kristínu Bjarnadóttur, sem á stærstan heiðurinn af Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls. Og Eirík Rögnvaldsson, sem stóð í þessum sporum sem verðlaunahafi fyrir átta árum og hefur öðrum fremur haldið máltækninni á dagskrá. Við sem á eftir komum búum að eldmóði þessa fólks og annarra sem lögðu hönd á plóg.

Sjö þúsund línur

Mín leið lá um Hagaskóla, sem er hérna hinum megin við Hagatorg. Þar lærði ég meirihlutann af því sem ég kann í íslenskri málfræði, hjá Einari Magnússyni, sem var þá umsjónarkennarinn minn og varð síðar skólastjóri. Það er kannski hrollvekjandi tilhugsun að maður sem síðar skrifaði alls konar máltæknihugbúnað skuli hafa mestalla málfræðiþekkingu sína úr grunnskóla. Ég kýs að líta á það sem meðmæli með Einari.

Úr Hagaskóla lá leiðin fljótt í tölvurnar. Ég byrjaði að vinna sem forritari fimmtán ára gamall, hjá Tölvuskólanum og síðar Tölvubúðinni, sem fluttu inn Commodore-einmenningstölvur. Þær kunnu enga íslensku þegar þær komu til landsins. Letrið og stýrikerfið voru föst í minniskubbum á móðurborðinu, á ensku. En metnaðurinn fyrir íslenskunnar hönd nægði til þess að hver einasta innflutt tölva var opnuð á verkstæði búðarinnar og skipt um þrjá kubba, með hjálp lóðbolta og kubbabrennara, svo að hún gæti sýnt ð, þ, æ og ö og stutt broddstafi á skjá og lyklaborði.

Ein þessara tölva á nú heiðurssess á skrifstofu Miðeindar, 45 ára gömul, og kann ennþá reiprennandi íslensku. Það er meira en sagt verður um suma kvittanaprentara í búðum eða bíóum í dag.

Svo kom Netskraflið. Það átti að vera einfalt lærdómsverkefni með það markmið helst að gera mig samræðuhæfan við dóttur mína. Hún var þá nýútskrifuð úr tölvunarfræði og kunni allt það nýjasta, ólíkt pabba gamla á þeim tíma. En skrafl þarf orðalista, orðalistinn leiddi mig að Beygingarlýsingunni, hún kveikti alls kyns neista og allt í einu og alveg óvart var orðið til sprotafyrirtæki á sviði máltækni. Miðeind byrjaði á hefðbundnum aðferðum, reglum og málfræði, og færði sig síðar yfir í tauganetin - tæknina sem gervigreind nútímans byggist á - þegar þau fóru að standa sig betur en reglubúnaðurinn.

Í árdaga Miðeindar kom málfræðin frá Einari Magnússyni í góðar þarfir, þegar ég settist niður — án þess að vita almennilega hvað ég væri að færast í fang — og gerði atrennu að því að sníða íslenska málfræði í tölvutækt form: sjö þúsund línur af handskrifuðum reglum, svokölluð samhengisfrjáls málfræði eða context-free grammar.

Innskot: Þessa enskuslettu leyfi ég mér bara af því að í dag er mánudagur. Á miðvikudögum er bannað að sletta hjá okkur í Miðeind — við höldum upp á slettulausa miðvikudaga — og þá verðum við að finna íslensk orð yfir allt, til dæmis gátstaði, togbeiðnir, kóðahafnir og mælipróf. Jónas hefði kunnað vel við sig á skrifstofunni hjá okkur, að minnsta kosti á miðvikudögum.

En fyrsta afurð Miðeindar var sem sagt setningagreinirinn Greynir, með yfsiloni, sem byggði á tölvutæku málfræðinni. Hann gæti verið umfangsmesta setningafræðiverkefni sem nemandi úr Hagaskóla hefur skilað. En því var raunar skilað um það bil 35 árum of seint.

Greynir hefur nú lesið, trjágreint og orðflokkað um 1,6 milljónir íslenskra frétta og greina. Spilaðar hafa verið tíu milljónir viðureigna í Netskrafli, og skráðir notendur Málstaðar, máltæknivefs Miðeindar, nálgast 50 þúsund. Íslendingar vilja sem sagt bæði leika sér að málinu og vanda sig við það. Það er góðs viti.

Ég verð þó að vera hreinskilinn. Ég mæli ekki með því við neinn sem stefnir á að hagnast á hugbúnaðargerð að velja sér máltækni fyrir íslensku. En endurgjaldið felst ekki í því sem mölur og ryð fá grandað, heldur í þakklátum notendum og þeim einlæga stuðningi sem málstaðurinn nýtur meðal almennings og við finnum glögglega fyrir í starfi okkar.

Þakkir

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar eru veitt einstaklingi, en verkið er unnið af hópi. Hjá Miðeind starfar fólk sem gæti hæglega unnið í banka, eða hjá erlendum tæknirisum, á eflaust umtalsvert betri launakjörum. En það kýs að vinna fyrir íslenskuna, af hugsjón og vilja til að styðja málstaðinn með snilli sinni. Ég tek við heiðrinum fyrir þeirra hönd og þakka þeim.

Máltækniáætlun stjórnvalda var okkur mikil lyftistöng, og opin gögn Árnastofnunar hafa verið ómetanleg sem grunnur rannsókna og þróunar. Það er ekki tilviljun að íslenskan stendur betur í gervigreindinni en flest tungumál af hennar stærð. Það er vegna þess að skipulega hefur verið unnið að því að safna, skrá og opna gögn — af metnaði sem á rætur að rekja allt til handritanna sem hýst eru í þessu húsi — og því þarf að halda áfram.

Sama hugsun býr að baki Snöru, rafræna safninu af orðabókum og heimildaritum sem Miðeind hýsir nú og heldur við. Þannig verða slík verk notuð og bætt í framtíðinni: rafrænt og á skjá fremur en á pappír. Við finnum til ábyrgðar gagnvart því að geyma og styðja íslenskuna í því framtíðarformi og mæta fjölbreyttum hópi notenda þar sem þeir eru staddir.

Í samhengi Snöru og orðabóka get ég ekki látið hjá líða að minnast Marðar Árnasonar, sem er nýfallinn frá. Mörður var meðal annars ritstjóri Íslenskrar orðabókar og höfundur Slangurorðabókarinnar, og lagði víða hönd á plóg fyrir málstaðinn. Þar er genginn einn af bestu vinum íslenskunnar og sannarlega skarð fyrir skildi.

Gervigreindin og fullveldið

Yfir í aðra sálma: Árið 2023 unnum við hjá Miðeind með OpenAI að því að bæta íslenskuna í gervigreindarlíkaninu GPT-4. Síðan hafa mállíkönin tekið stór stökk, sem betur fer, því sífellt stærri hluti samskipta okkar og upplýsingaöflunar færist inn á vettvang gervigreindar. Miðeind heldur úti opnum mæliprófum sem mæla íslenskugetu og menningarþekkingu líkananna. Þau bestu beygja núorðið nafnliði betur en meðal-Íslendingurinn. Og þau allra fremstu vita núna meira að segja hvar partíið er: í Dúfnahólum 10.

En alvara málsins er þessi: Gervigreind sem Íslendingar nota og verða sífellt háðari er smíðuð hjá bandarískum stórfyrirtækjum. Íslenskan er þar inni vegna þess að við undirbjuggum gögnin, mæliprófin og þekkinguna, og bönkuðum upp á, og flest fyrirtækjanna hafa tekið því vel.

En fullveldi framtíðar byggist meðal annars á að við tryggjum að máltækni og gervigreind nýtist til góðs á okkar eigin forsendum, og virki álíka vel á íslensku og á ensku. Til þess þurfa að vera til hágæða mælipróf og gagnasöfn á íslensku. Við eigum að ráða sjálf sem mestu um val og síun þeirra gagna, og um endurgjald fyrir þau þar sem það á við. Og við þurfum að hafa þekkinguna og innviðina til að þjálfa og reka eigin gervigreind — innanlands — fyrir þau viðföng þar sem slíkt er æskilegt. Slíkt verkefni er fyllilega raunhæft og Miðeind mun ekki láta sitt eftir liggja.

Fjölnismenn vissu að þjóð sem vill ráða sér sjálf þarf tungu sem rímar við samtíma sinn. Það verk hefur hver kynslóð unnið með sínum verkfærum: Jónas með penna, frumherjar upplýsingatækni með orðanefndum og stafatöflum, frumkvöðlar vélbúnaðar og hugbúnaðar með lóðboltum og minniskubbum, málfræðireglum, tauganetum og nú gervigreind. Verkfærin kunna að úreldast, en verkefnið er hið sama.

Jónas gaf íslenskunni orð yfir himingeiminn, sem „háa skilur hnetti“, eins og „blað skilur bakka og egg“. Einar Benediktsson skildi að: „orð er á Íslandi til / um allt sem er hugsað á jörðu“. Nú er það okkar að horfa áfram „til himins / með höfuðið hátt“ og efla metnaðinn fyrir hönd íslenskunnar - og láta hann einnig ná til „alls sem er hugsað í vélum“.

Takk fyrir mig.

Efnisorð:
Deildu þessari grein: