Tækniteymi
28.10.2026
Nú hefur Snara fengið stóra yfirhalningu og er orðin enn aðgengilegri og öflugri en áður. Rúmt ár er síðan Miðeind festi kaup á Snöru og síðan þá hefur mikil vinna farið fram bak við tjöldin við að koma gögnunum á sveigjanlegra snið og bæta upplifun notenda.
Í Snöru eru 43 verðmætar orðabækur og önnur rit sem mikilvægt er að varðveita, þróa og setja fram með notendavænum hætti. Rafrænar orðabækur bjóða upp á mikla möguleika sem hefðbundnar orðabækur á pappír gera ekki. Vefurinn er ekki bundinn af blaðsíðufjölda eins og prentaðar orðabækur svo færslur fá meira rými og geta verið læsilegri og gagnlegri á ýmsa lund. Til þess að geta nýtt kosti rafrænna orðabóka höfum við fært gögn Snöru yfir á snið sem er sveigjanlegra en það fyrra og gerir okkur kleift að birta upplýsingar á nýjan og betri hátt. Samhliða þeirri vinnu hafa ýmsar bækur verið lagaðar, bættar eða uppfærðar.
Tvö ný söfn bætast nú við Snöru: Samheiti Miðeindar, sem er samheitaorðabók sem unnin var með sjálfvirkum aðferðum og inniheldur m.a. orðaforða sem Íslensk samheitaorðabók gerir ekki, og Ensk.is, sem er frjáls og opin ensk-íslensk orðabók sem unnin er af Sveinbirni Þórðarsyni. Að auki birtum við nú aftur söfn sem voru áður aðgengileg á Snöru en hafa ekki verið fáanleg á Málstað hingað til. Það eru Enskt-enskt orðanet og orðstöðulyklar, sem gera notendum kleift að fletta upp orðum og sjá í hvaða samhengi hvert þeirra birtist. Með orðstöðulyklum má leita í verkum Halldórs Laxness og Íslendingasögum. Við höfum einnig uppfært Tölvuorðasafnið, sem tilheyrir enska Íðorðabankanum. Hægt er að nálgast nánari lýsingu á hverri orðabók eða riti fyrir sig á Málstað.
Um leið og gögnunum var komið á nútímalegra snið höfum við haft að leiðarljósi að staðla bæði stakar færslur og færslur þvert á rit, þannig að notandi sem er vanur að fletta upp í einu riti geti auðveldlega gripið í önnur rit. Uppsetning og útlit færslna er því samræmd að því marki sem hægt er og atriði innan færslna, t.d. skilgreiningar og dæmi, eru sýnd á sama hátt. Hér að neðan eru sýnidæmi úr tveimur orðabókum, Þýsk-íslenskri og Dansk-íslenskri, sem voru áður með mismunandi uppsetningu sem hefur nú verið samræmd.
Framsetning gagna hefur verið stórbætt í Snöru og nú nýtum við okkur ýmsa möguleika sem stafrænar orðabækur bjóða upp á. Skýringartexta, sem birtist þegar mús sveimar yfir ýmsar skammstafanir, hefur verið bætt við til að auðvelda lestur. Textinn er í boði fyrir málfræðiupplýsingar, textategundir, notkunarsvið og fleira og birtist á bæði erlendu tungumáli og íslensku þar sem við á. Hér að neðan er sýnidæmi úr Spænsk-íslenskri orðabók.
Í stafrænum orðabókum geta vísanir milli færslna einnig verið skýrari og nú höfum við bætt við litlum glugga sem opnast þegar ýtt er á millivísun. Þannig getur notandi auðveldlega forskoðað aðra færslu án þess að þurfa að opna hana alla. Hér sjáum við dæmi úr Íslensk-enskri orðabók.
Samheiti og andheiti birtast nú í sérstökum reitum hægra megin við leitarniðurstöður í Snöru. Reitirnir birtast einnig í hliðarstikunni í Málfríði og auðvelda notandanum að viðhafa fjölbreytt orðfæri í textum. Samheiti og andheiti birtast fyrir íslensku og eru fengin úr öllum völdum orðabókum sem innihalda samheiti eða andheiti. Að neðan sjáum við dæmi um íslensk samheiti orðsins „drífa“ þegar allar íslenskar orðabækur eru valdar.
Við höfum einnig bætt stillingum við leitina í Snöru til að auðvelda notendum að finna réttar færslur. Hægt er að stilla hvort aðeins er leitað í uppflettimyndum eða einnig í skilgreiningum. Mynsturleit er aðgengilegri þannig að aðeins þarf að fylla út í reitina „Byrjar á“, „Inniheldur“, „Endar á“ og „Fjöldi stafa“ í stað þess að slá inn algildistákn. Hér sjáum við hvernig mynsturleit er valin.
Orðabækur Snöru eru nú innbyggðar í fleiri verkfæri Málstaðar, ekki aðeins í samheitum og andheitum fyrir Málfríði heldur einnig sem þýðingar í Erlendi ef beðið er um þýðingu á stöku orði. Þá er sjálfvalið að leitað er í orðabókum Snöru að þýðingu orðsins en notendur geta einnig beðið um vélþýðingu, eins og sést á myndinni hér að neðan.
Í framhaldi af þessari vinnu höldum við áfram að bæta Snöru, t.d. með því að uppfæra færslur sem eru orðnar úreltar eða að leiðrétta atriði sem okkur hefur yfirsést. Við fögnum ábendingum frá notendum, sem má nú senda gegnum endurgjöf á stakar færslur í Snöru eða á [email protected]. Hægt er að fylgjast með hér á heimasíðu okkar, á Facebook, Instagram og á LinkedIn.
Ef þú vilt fylgjast með frekari verkefnum hjá Miðeind getum við látið þig vita þegar eitthvað nýtt er að frétta.