Miðeind er leiðandi á sviði máltækni og gervigreindar
Tæknin okkar gerir kleift að vinna með íslenskan texta og talmál í tölvum, símum og öðrum tækjum. Hugbúnaður Miðeindar er opinn og nýtist almenningi, fyrirtækjum og rannsakendum.
![Íslenska er okkar mál](pro_hero-1024.jpg?hash=fde6d85ebf8403cc516c)
![Linda Heimisdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson og forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson](utmessan2024-320.jpg?hash=c61b864932565a1fa69d)
![Um tæknina](afrek2-320.jpg?hash=fba121c70c1557b95c45)
Vöruúrval Miðeindar
Miðeind býður upp á fjölbreyttar vörur og þjónustu sniðnar að ólíkum þörfum viðskiptavina.
Við erum ávallt til í að skoða nýja möguleika með þér.
Hafðu samband á
mideind@mideind.is ef þú vilt taka spjallið!
![Það er gaman í vinnunni](hopmynd092023-320.jpg?hash=747946e649b076d1d416)
Það er gaman í vinnunni
Hjá Miðeind starfar þéttur og öflugur hópur fólks með brennandi áhuga á máltækni og gervigreind. Við segjum stundum að við störfum á mörkum rannsókna og hagnýtingar, og þar er gaman að vera. Við tókum þátt í fimm ára máltækniáætlun stjórnvalda, þar sem unnið var að kjarnaverkefnum og innviðum fyrir íslensku. Við þróum jafnframt vörur og þjónustu sem byggja á nýtingu þessarar nýju og spennandi tækni til hagsbóta fyrir almenning og atvinnulíf. Ef þig langar að slást í hópinn skaltu endilega skoða starfasíðuna okkar eða senda okkur póst á starf@mideind.is!
![Persónuvernd](pro_personuvernd-624.jpg?hash=291e058baee2cba292f3)
Sjáðu í gegnum holt og hæðir…
Heimurinn verður sífellt tæknivæddari. Stóru alþjóðlegu tæknifyrirtækin ráða miklu um þróunina. Í því umhverfi verður æ mikilvægara að huga að gegnsæi, persónuvernd og eignarhaldi á gögnum. Miðeind er íslenskt sprotafyrirtæki sem byggir á litlu en öflugu teymi og er annt um íslenska tungu í tækniveröld. Við tökum persónuvernd alvarlega. Þú hefur ávallt stjórn á þínum gögnum hjá okkur og hugbúnaður okkar er opinn á netinu, hverjum sem er til skoðunar.