Við kynnum til leiks Lísu sem dregur texta og myndir úr PDF, PNG og JPG skjölum með ljóslestri (Optical Character Recognition eða OCR). Lísa getur meðhöndlað stór skjöl, allt að 1.000 blaðsíður eða 100MB að stærð, og skilar frá sér .docx, .odt, .md eða .txt textaskjali sem hægt er að vinna áfram með. Hún ræður vel við margs konar skjöl og tungumál, og þá sérstaklega íslenskan texta og séríslenska stafi.
Þegar skjal hefur verið valið þá birtist það í inntakshlið viðmótsins þar sem hægt er að fletta á milli blaðsíðna og stækka og minnka skjalið eftir þörfum. Þá stendur líka til boða að sækja myndir úr skjali við ljóslestur, en þá eru allar myndir sérstaklega klipptar úr skjalinu og fylgja svo með á viðeigandi stað í textaskjalinu sem út kemur (nema .txt sé valið).
Lesa skjal hnappurinn byrjar verkefnið og framvindustika sýnir stöðu verksins. Hægt er að loka flipanum og koma aftur síðar þar sem verkið heldur áfram að keyra á vefþjóninum.
Þegar ljóslestri er lokið gefur Sækja .docx hnappurinn skrána á Word formi, en hægt er að velja aðrar skráartegundir með örvahnappinum til hliðar. Niðurhalstenglarnir eru virkir í eina klukkustund.
Einnig er hægt að flytja skjalið beint yfir í skjalaþýðingu í Erlendi með Þýðing eða skjalayfirlestur í Málfríði með Yfirlestur fyrir neðan. Þá er hægt að draga PDF, PNG og JPG skjöl beint inn í Málfríði og Erlend og þá fer ljóslestur fram sem forvinnsluskref fyrir þýðingu og yfirlestur. Þar er einnig hægt að færa ljóslesið skjal beint inn í ritil með Færa í ritil hnappi í inntakshlið viðmótsins.
Hér að neðan má svo sjá dæmi um PDF síðu til vinstri og ljóslesið .docx úttak til hægri þar sem búið er að greina og klippa út mynd á síðunni sem látin er fylgja með textanum að neðan í viðeigandi stíl.
Allir notendur Málstaðar geta nú nýtt sér þessa lausn en hver ljóslesin blaðsíða kostar 10 kr. í inneign / notkunarkostnað. Þetta þýðir m.a. að notendur í fastri áskrift geta ljóslesið allt að 1.000 blaðsíður á mánuði með mánaðarlegu inneigninni sinni.
Á næstunni stefnum við á að betrumbæta upplifunina enn frekar m.a. með eftirfarandi viðbótum:
Google Drive samþætting þar sem notendur geta valið skjöl beint af Google Drive og einnig vistað niðurstöður þar.
Verkefnissaga þar sem haldið er utan um fyrri ljóslestursverkefni líkt og í talgreiningarsögunni í Hreimi.
Forritaskil (API) fyrir ljóslestur á api.malstadur.is sem er aðgengilegur öllum í frjálsri áskrift.
Meiri nákvæmni í ljóslestri, m.a. með því að viðhalda samræmi í textastíl milli blaðsíðna.
Við erum mjög spennt að sjá hvernig ljóslesturinn kemur að notum og erum með margt annað áhugavert í pípunum. Við hvetjum notendur til að fylgjast með tilkynningum um spennandi nýjungar sem munu gera vinnu með íslenskan texta enn auðveldari og skilvirkari. Hægt er að fylgjast með hér á heimasíðu okkar, á Facebook, Instagram og á Linkedin.
Við hlökkum mikið til, eins og alltaf, að koma nýjustu og bestu máltækni og gervigreind fyrir íslensku í hendur íslensks samfélags á gagnsæjan og ábyrgan hátt.
Ef þú vilt fylgjast með frekari verkefnum hjá Miðeind getum við látið þig vita þegar eitthvað nýtt er að frétta.