Við hjá Miðeind erum í skýjunum með þær frábæru viðtökur sem Málstaður hefur fengið, en nú á dögunum skráði 30 þúsundasti notandinn sig á Málstað.
Við höfum breytt og bætt ýmislegt á Málstað síðustu misseri sem á eflaust sinn þátt í vinsældunum. Þar á meðal bættist við hliðarstika í flestar lausnir Málstaðar ásamt því að einfalt mál bættist í textavinnslu í Málfríði, Málstaður allur fékk nýtt útlit og myrkham, við einfölduðum áskriftarleiðir og lækkuðum svo verð á talgreiningu, og síðast en ekki síst gerðum við vöruvirkni Málstaðar aðgengilega í gegnum forritaskil (API) beint úr frjálsri áskrift að Málstað.
Það er ýmislegt fleira spennandi í Málstað á döfinni á árinu og við hlökkum mikið til, eins og alltaf, að koma nýjustu og bestu máltækni og gervigreind fyrir íslensku í hendur íslensks samfélags á gagnsæjan og ábyrgan hátt.
Ef þú vilt fylgjast með frekari verkefnum hjá Miðeind getum við látið þig vita þegar eitthvað nýtt er að frétta.