Nýjung á Málstað: Nákvæmari þýðingar með orðalistum og greiðslukort í hópáskrift

Við þökkum gríðargóðar móttökur samantektarinnar í Málfríði, sem við kynntum fyrir stuttu. Notkun á Málstað í heild sinni hefur einnig tekið mikinn kipp. Stutt er síðan við tilkynntum um 10.000 notendur, en þeir eru nú komnir yfir 13.500.

Ný virkni: Nákvæmari og samræmdari þýðingar með orðalistum

Erlendur kom sterkur inn á Málstað fyrr á árinu og hefur vakið mikla lukku meðal notenda. Nú höfum við gert Erlend enn notendavænni og bætt við stuðningi við orðalista.

Þú getur nú bæði nýtt þér almenna orðalista sem Málstaður býður upp á, og skilgreint þína eigin lista. Listarnir innihalda orð ásamt þýðingu þess, á milli hvaða mála sem er. Einnig er hægt að taka fram á hvaða sérsviði orðin liggja.

Erlendur tekur tillit til listanna í þýðingarferlinu sem leiðir af sér nákvæmari og samræmdari þýðingar. Sérstaklega gagnlegt getur verið að hlaða inn orðalistum í kringum raddblæ fyrirtækja, íðorðum á ákveðnu sérsviði eða örnefnum og öðrum sérheitum sem koma fyrir í umfjöllun.

Að neðan er stutt hjálparmyndband sem sýnir orðalistavirknina.

Hvernig virka orðalistar í Erlendi?

shape

Nýjung í virkni: Stuðningur við greiðslukort í hópáskrift

Við kynntum nýlega nýja áskriftarleið, sem kemur til móts við þarfir umfram það sem einstaklingsáskrift býður upp á. Í fyrstu útgáfu var boðið upp á reikningsviðskipti en nú styðjum við einnig greiðslukort, líkt og í einstaklingsáskriftinni. Það gæti því ekki verið einfaldara að skrá sig í áskrift að Málstað!

Að lokum

Við erum mjög spennt að sjá hvernig nýja virknin kemur að notum og erum með margt annað spennandi í pípunum. Við hvetjum notendur til að fylgjast með tilkynningum um spennandi nýjungar sem munu gera vinnu með íslenskan texta enn auðveldari og skilvirkari. Hægt er að fylgjast með hér á síðunni, á Facebook, Instagram og Linkedin.

Skráðu þig á málstaður.is og upplifðu kraftinn í íslenskri máltækni!

Efnisorð:
Deildu þessari grein: