Skraflleikur

Ránmorð,
er það orð?

Í Netskraflinu getur fólk skraflað hvert við annað eða við misglúrna tölvuþjarka. Netskrafli var hleypt af stokkunum árið 2015 og síðan þá hafa nærri 25.000 manns skráð sig þar til leiks. Það er ókeypis en þau sem vilja styrkja rekstur þess geta gerst Vinir Netskrafls og lagt sem nemur einum kaffibolla á kaffihúsi á mánuði í púkkið.

Orðaforði Netskrafls byggir á Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN) sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum heldur úti. Og já, samkvæmt BÍN er ránmorð orð!

Netskrafl

Netskraflið hefur slegið í gegn sem skemmtileg og skerpandi afþreying fyrir alla sem hafa gaman af íslenskunni, krossgátum og spennandi viðureignum. Á netskrafl.is er hægt að skrafla við annað fólk og við tölvuþjarkana Amlóða, Miðlung og Fullsterkan. Orðaforði Netskraflsins byggir á Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN), en í henni eru um 2,4 milljónir ólíkra orðmynda sem leggja má niður í skrafli.

Netskraflarar koma saman í líflegum fésbókarhópi, þar sem m.a. eru skipulögð regluleg skraflmót sem fram fara í gegnum tölvuskjáinn.

Netskrafl er ókeypis, en þau sem vilja geta gerst Vinir Netskrafls og lagt 490 kr. mánaðarlega í púkkið, til að standa straum af rekstri kerfisins og vinnu við það. Sem þakklætisvott njóta Vinir Netskrafls nokkurra fríðinda, til dæmis geta þeir haft ótakmarkaðan fjölda viðureigna í gangi samtímis, þeir hafa aðgang að yfirliti í lok hverrar viðureignar þar sem sjá má bestu leiki í hverri stöðu, og þeir geta skorað á aðra keppendur í svokölluðum keppnisham.