Við í Miðeind fögnum degi íslenskrar tungu, sem hefur verið haldinn hátíðlegur frá 1996. Dagurinn, sem haldinn er á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, snýst um að „minna á mikilvægi íslenskrar tungu og gleðjast og fagna sögu hennar, samtíð og framtíð“.
Við tökum heils hugar undir að íslenskan sé mikilvæg og höfum lagt okkar af mörkum í gegnum tíðina til að hún fylgi með tækniþróun. Saga íslensku í tækniheimum hefur verið háð tilviljunum og furðulega mörg dæmi eru um að stakur íslenskur starfsmaður í stóru tæknifyrirtæki hafi orðið þess valdandi að íslenska væri studd í alþekktum hugbúnaði. Sagan sýnir að það er ekki hægt að treysta á neitt í þessum efnum og því má ekki láta deigan síga í baráttunni fyrir tilvist íslensku í tækninni.
Í nýlegum pistli rekur Vilhjálmur, stofnandi Miðeindar, söguna á bak við íslenskustuðning í Commodore-tölvum frá níunda áratugnum. Hann útbjó sérstaka kubba sem koma þurfti fyrir í móðurborði tölvunnar til að hægt væri að nota íslenska stafi. Hann hefur alla tíð haft áhuga á íslenskunni, eins og nánar rakið er í viðtali á heimasíðu Miðeindar. Vilhjálmur hélt úti Netskrafli og fékk við það áhuga á máltækni sem varð til þess að hann stofnaði Miðeind, tilgangsdrifið fyrirtæki með það að markmiði að gera íslensku aðgengilega og nothæfa í stafrænu samhengi. Eins og við lýsum í stefnu okkar er markmiðið ekki að skila hagnaði til hluthafa heldur að skila ávinningi til samfélagsins. Þetta hefur gefið okkur einstaka stöðu og leyft okkur að halda áherslunni á íslensku án þess að vera of bundin af öðrum áherslum.
Á fyrstu árum Miðeindar var áherslan á grunnlausnir. Miðeind hefur tekið virkan þátt í máltækniáætlunum ríkisins og meðal annars séð um að útfæra ýmsa opna hugbúnaðarpakka til að vinna með íslensku. Pakkarnir eru aðgengilegir á GitHub og eru reglulega uppfærðir, enda eru flestir þeirra enn í mikilli notkun. Þó að gervigreind geti leyst ýmis vandamál gegna litlir, hraðir hugbúnaðarpakkar enn mikilvægu hlutverki.
Með tilkomu risamállíkana höfum við líka gert það sem við getum til að ýta á eftir íslenskustuðningi innan þeirra. Þar má helst nefna samstarf við OpenAI um íslenskustuðning í GPT-4 á sínum tíma, þar sem íslenska var eina tungumálið fyrir utan ensku sem var sérstaklega tekið tillit til í þjálfun. Samstarfið var mikill hvalreki fyrir íslenskuna og kom á hárréttum tíma fyrir hana og OpenAI, en ekki er hægt að treysta á að slíkur stuðningur haldi sér eftir að markmiðum er náð og nýjabrumið er farið af. Það fylgir því alltaf áhætta fyrir lítið málsamfélag að treysta alfarið á stóra erlenda aðila og nauðsynlegt að hafa eigin innviði til staðar. Verkefnið var þó gríðarlega dýrmæt reynsla af þróun slíkra líkana fyrir Miðeind og veitti góða innsýn í hvernig best er staðið að baráttu fyrir hagsmunum íslenskunnar hjá stórum tæknifyrirtækjum. Miðeind hefur átt slík samtöl við fleiri fyrirtæki sem hefur skilað ýmsu bak við tjöldin og mikilvægt er að halda þannig samtölum áfram, eins og með átaki sem Almannarómur stendur nú fyrir gagnvart Apple.
Miðeind hefur haldið úti stigatöflu með mæliprófum fyrir íslenskugetu mállíkana í tvíþættum tilgangi. Annars vegar sem upplýsingagjöf til almennings og fyrirtækja sem vilja nota risamállíkön á íslensku almennt eða í vörur sínar; hins vegar sem aðhald og keppikefli fyrir þau sem þróa og gefa út mállíkön, enda ekki sjálfgefið að þau mæli íslenskugetuna sjálf. Í ljósi sívaxandi íslenskugetu stærstu líkananna voru meira krefjandi mælipróf fyrir stigatöfluna útfærð í sumar, eins og við fjölluðum um í pistli.
Eftir máltækniáætlun rákum við okkur á að atvinnulífið var seint að taka við sér í notkun lausnanna sem þar urðu til. Við vorum með ágætt úrval lausna fyrir íslensku sem við vildum koma í víðtækari notkun. Upp úr því fæddist hugmyndin að Málstað, samþættum vettvangi fyrir allar helstu máltæknilausnir Miðeindar. Málstaður er okkar leið til að koma tækninni og ávinningnum sem hægt er að ná fram með henni í hendurnar á almenningi, stofnunum og fyrirtækjum landsins. Á Málstað eru tól fyrir talgreiningu, yfirlestur, þýðingar, ljóslestur og fleira til. Tólin eru sett fram í skýrt afmörkuðum tilgangi, ekki sem opið spjall við mállíkan.
Upphaflega markmiðið var að koma tækninni til sem flestra, sem Málstaður hefur heldur betur náð. Eftir því sem Málstaður hefur þroskast hefur okkur gefist betra tækifæri til að huga sérstaklega að þeim sem þurfa aðgengislausnir. Málfríður er til að mynda þjálfuð sérstaklega á textum frá lesblindum og annarsmálshöfum og stendur sig því mjög vel í að lesa yfir texta frá þeim hópum. Hreimur hentar líka lesblindum og öðrum sem eiga erfitt með að koma frá sér efni á textaformi, auk þess að búa til skjátexta fyrir heyrnarlaus og heyrnarskert. Erlendur hjálpar annarsmálshöfum að skilja það sem fram fer í samfélaginu. Lísa kemur efni úr læstum PDF-skjölum og myndum yfir á form sem hægt er að vinna með, þar á meðal með skjálesurum. Textavinnslan í Málfríði snýr texta yfir á einfaldara mál og hentar börnum, annarsmálshöfum og þeim sem eiga erfiðara með að tileinka sér texta. Loks má nefna að lausn frá Miðeind er grunnur að fréttum á auðskildu máli á vef RÚV, sem fá mannlega yfirferð áður en þær eru gefnar út. Það má þó alltaf gera betur og við erum með fleira í undirbúningi sem við hlökkum til að segja betur frá.
Íslenskugetu risamállíkana hefur farið mikið fram síðustu misseri en þó er enn nokkuð í að þau nái fullu valdi á íslensku. Nærtækt dæmi er stutt spjall við risamállíkan til að fá hugmyndir að barnvænum dagsferðum frá Reykjavík. Innihald svaranna var ágætt og leiddi af sér góðan dag í Keflavík stuttu síðar, en í svarinu var meðal annars stungið upp á að „gæða ykkur á góðum veitingastað“. Flest íslenskumælandi gætu sagt að það að gæða sér á einhverju á við um mat en ekki staðsetningu, en þetta er gott dæmi um blæbrigði sem erfitt er að fá fram í þjálfunargögnum. Þetta skiptir máli þegar merki eru um að sífellt fleiri skrifa texta beint í viðmóti risamállíkana og lesa útkomuna ekki nógu vel yfir áður en hún er send áfram. Þörfin á gæðagögnum, gerðum af mannfólki, sem staðfesta svörin er því alltaf fyrir hendi.
Miðeind keypti Snöru í fyrra og hefur unnið hörðum höndum að því að koma þessum mikilvægu orðabókum í betri búning. Orðabækurnar nýtast líka í að skorða betur svör annarra tóla á Málstað, þannig að sem mest er byggt á því sem við vitum áður en hafist er handa. Þau gögn sem hafa komið út úr máltækniáætlunum ríkisins hafa líka skipt sköpum bæði fyrir þróun tóla hjá Miðeind og við að þrýsta á alþjóðleg tæknifyrirtæki að nýta þau til að bæta íslenskuna í sínum lausnum. Við viljum þakka það góða starf sem hefur átt sér stað þar og hjá öðrum sem hafa lagt íslenskunni lið í gegnum árin. Allt sem Miðeind gerir byggir á styrkum grunni sem hefur verið lagður síðustu áratugi.
Starfsfólk Miðeindar reynir að halda íslenskunni á lofti í daglegum störfum og taka Jónas sér til fyrirmyndar, sem var mikill nýyrðasmiður. Það heldur meðal annars úti slettulausum miðvikudögum, þar sem einungis má nota íslensk íðorð. Upp úr þessu hafa mýmörg nýyrði orðið til og meðal annars er algengt að heyra starfsfólk tala um að flétta inn togbeiðnina (e. merge the pull request). Það sem mestu skiptir þegar íðorð eru smíðuð er að þau séu við höndina þegar þeirra er þörf, annars ná þau ekki fótfestu. Slettulausir miðvikudagar hafa verið einstaklega góð leið til að ýta við fólki að hugsa um íslenskuna og að vanda sig við hana og við mælum með að sem flestir vinnustaðir taki þá upp.
Íslenskan stendur frammi fyrir mörgum áskorunum. Börn alast upp í málumhverfi þar sem enskan er aldrei langt undan, sífellt fleiri hafa annað móðurmál en íslensku og ný tækni kemur fram hraðar en nokkru sinni. Enn í dag eru miða- og kvittanaprentarar sem ráða ekki við íslenska stafi, um 45 árum eftir að Vilhjálmur kom kubbunum fyrir í Commodore-tölvunni.
Sagan sýnir okkur þó hvað þarf til. Íslenskan er með í tækninni af því að einhver ýtti á eftir því, aftur og aftur. Í litlu málsamfélagi skiptir hver einasta manneskja máli og við getum öll lagt okkar af mörkum: gert kröfu um íslensku í tækjunum og forritunum sem við notum, horft á úttak gervigreindar með gagnrýnum augum og leikið okkur með málið.
Íslenskan kemur ekki af sjálfu sér, en hún fylgir okkur inn í framtíðina ef við tökum hana með. Til hamingju með daginn!