Við hjá Miðeind fögnum þeim áfanga að notendur Málstaðar eru nú orðnir 40.000 talsins. Það er ekki lengra síðan en í maí sem við náðum 30.000 notendum og á þeim mánuðum sem liðnir eru síðan höfum við bætt ýmsu við Málstað:
Nú er hægt að þýða heil skjöl í Erlendi án þess að tapa sniðmáti.
Málfríður reiknar núna út læsileikamat fyrir textann þinn og gefur nákvæmari ábendingar.
Lísa er ný inn á Málstað og gerir kleift að ljóslesa myndir og skönnuð skjöl svo hægt sé að vinna áfram textann sem í þeim er.
Hreimur fékk yfirhalningu og nú er enn þægilegra að skima úttakið sem texta eða skjátexta, leita í því, sía og fylgjast með mælendum. Nú er líka hægt að smella á orð í úttakinu til að færa spilarann þangað. Loks er mun skýrara hvernig þú sækir textann þinn á ólíku formi og hvað það felur í sér.
Google Drive tenging bættist við svo nú er hægt að sækja skjöl beint á Drive og vista niðurstöðuna þar aftur.
Við erum hæstánægð með viðtökurnar og það er von á ýmsu fleira spennandi inn á Málstað með haustinu sem við hlökkum til að segja betur frá. Við hvetjum notendur til að fylgjast með tilkynningum um spennandi nýjungar sem munu gera vinnu með íslenskan texta enn auðveldari og skilvirkari. Hægt er að fylgjast með hér á heimasíðu okkar, á Facebook, Instagram og á Linkedin.
Ef þú vilt fylgjast með frekari verkefnum hjá Miðeind getum við látið þig vita þegar eitthvað nýtt er að frétta.