Væntanlegt

Símaviðmót Málfríðar

Viltu skila frá þér fagmannlegri og fínpússaðri texta?

Málfríður er ný lausn frá Miðeind sem notar gervigreind til að greina og lagfæra atriði í stafsetningu, málfræði og stíl í texta á augabragði. Málfríður hentar öllum sem vilja lyfta skrifum sínum upp á næsta stig.

Málfríður er búin mörgum kostum

Leiðréttingar með hjálp gervigreindar: Málfríður beitir öflugri gervigreindartækni til að greina flóknar málfræði- og stílvillur sem hefðbundin leiðréttingartól koma ekki auga á.

Sniðmát: Texti sem er afritaður inn í viðmót Málfríðar heldur sniðmáti sínu, s.s. feitletrun, leturgerð og öðru í þeim dúr. Það er því auðvelt að láta Málfríði lesa yfir staka kafla í ritgerð eða skýrslu.

Ytri tengingar: Málfríður nýtir ýmis orðasöfn til að flýta fyrir skrifum og dýpka þau.

Viðbótarvirkni: Málfríður býður einnig upp á ýmiss konar aukalega virkni til að auðvelda vinnu með texta, svo sem að fá samantekt á efni textans, mat á stíl og annað í þeim dúr.

Notendavænt viðmót: Málfríður er auðveld í notkun, hvort sem þú ert byrjandi eða sérfræðingur í ritun. Málfríður er hönnuð með þægindi notandans í huga.

Hvernig nota ég Málfríði?

Viðmót Málfríðar er einfalt. Þú getur skrifað beint inn í viðmótið eða afritað inn texta. Málfríður tekur fljótt við sér, greinir textann sjálfkrafa og bendir á atriði sem má bæta. Þú færð síðan val um að samþykkja eða hafna tillögum, sem gefur þér fulla stjórn á endanlegri útgáfu textans. Hvort sem þú ert að skrifa bók, undirbúa kynningu, eða vilt einfaldlega skrifa betri tölvupósta, þá er Málfríður öflugt verkfæri sem hjálpar skilaboðum þínum að hitta í mark.

Viðmót Hreims